Ókyrrð
Frumsýnd 27.september kl.20.00
The mind is its own place, and in itself, can make heaven of Hell, and a hell of Heaven.
-John Milton
Líkamlegur ótti er mönnum eðlislægur, rétt eins og hjá öðrum skepnum, og gegnir því nauðsynlega hlutverki að stýra okkur út úr aðsteðjandi hættum. Erfiðara er að úrskurða um hagnýtt gildi ýmissa hugarburða og vitrana sem herja á okkur, halda fyrir okkur vöku, en stuðla jafnframt að doða og fælni við hluti, dýr og annað fólk. Það er eitthvað sem vofir yfir en við vitum ekki hvað það er.
Ókyrrð fjallar um mannlegar tilfinningar og tilraunir okkar til að hafa stjórn á þeim, um innra líf og ofvöxt ímyndunaraflsins.
Sýningin Ókyrrð er samin af leikhópnum.
Leikendur: Ragnar Ísleifur Bragason, Margrét Bjarnadóttir, Friðgeir Einarsson
Ljósahönnun: Björn Elvar Sigmarsson
Hljóðheimur: Kristján Loðmfjörð
Leikstjórn: Friðgeir Einarsson
Skepna
Frumsýnd 10.september klukkan 20.00
Unglingspiltur fremur hræðilegan glæp. Hann murkar líftóruna úr föður sínum með því að búta hann hægt og rólega í sundur í kjallaranum heima hjá sér. Þessi hræðilega saga fer að birtast á fleiri stöðum og fer að minna á smitsjúkdóm. Er þetta veira, eða er illskan alltaf til staðar? Af hverju sækjum við í myrkrið? Vitum við hvenær við erum að fóðra skepnuna í okkur? Magnað verk sem varpar fram áleitnum spurningum um mannlegt óeðli og skepnuna sem býr í okkur öllum. Eða hvað?
Leikur:
Bjartmar Þórðarson
Leikstjórn:
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson
Um:
Bjartmar Þórðarson
Bjartmar Þórðarson útskrifaðist sem leikari frá Webber Douglas Academy of Dramatic Art í London árið 2004. Hann hefur leikið í fjölda leiksýninga hérlendis sem erlendis. Má þar á meðal nefna Túskildingsóperuna og Syngjandi í rigningunni hjá Þjóðleikhúsinu og Caligula í Battersea Arts Centre, ásamt ýmsum sjónvarpsþáttum og auglýsingum. Einnig útskrifaðist hann úr MA-námi í Leikstjórn frá Rose Bruford College árið 2008 og hefur eftir útskrift leikstýrt Mr. Kolpert eftir David Gieselmann í Greenwich Playhouse og aðstoðarleikstýrt “Ég heiti Rachel Corrie” í Borgarleikhúsinu.
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson – Denniminn
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson fæddist þann 24. ágúst 1974. Þann 23. október 1976 hætti hann á pela. Guðjón hefur starfað við nærri allt nema dýralækningar, en eftir að hafa siglt um flest heimsins höf í nokkur ár sem smiður á skemmtiferðaskipum ákvað Guðjón að setjast á skólabekk og útskrifaðist hann frá leiklistardeild ArtsEd í Lúndúnum árið 2003.
Eftir útskrift hefur Guðjón leikið meðal annars í Úlfhamssögu í Hafnarfjarðarleikhúsinu, Saumastofunni 30 árum síðar, Riðið inní sólarlagið og Eilífri hamingju í Borgarleikhúsinu.
Hann hefur líka starfað með LA en hann fór þar með hlutverk Slaviks í Maríubjöllunni og sá um hreyfingar Plöntunnar í Litlu Hryllingsbúðinni. Fyrir jólin 2008 leikstýrði Guðjón sýningunni Lápur, Skrápur og jólaskapið hjá LA og var sú sýning tilnefnd til Grímunnar sem Barnasýning ársins
Guðjón var tilnefndur sem besti leikstjóri á ACT NOW hátíðinni 2005 fyrir sýninguna Allra Kvikinda Líki. Guðjón starfar með tveimur hljómsveitum; einsmannssveitinni Múkk og tregasveitinni Car Park.
[…] Sýningar […]