Leikhús-Batteríið er nýtt leikhús í miðbæ Reykjavíkur. Húsnæðið er staðsett á annari hæð fyrir ofan skemmtistaðinn Batteríið(gamla Organ) en gengið er inn í port frá Naustunum milli Hafnarstrætis og Tryggvagötu.
Atvinnuleikhópar munu sýna verk sín í þessu óhefðbundna en fallega rými allan ársins hring. Dagskráin verður þétt setin og eru sýningarnar keyrðar í gegn með krafti.
Á Batteríinu, sem er á neðri hæð hússins, geta gestir fengið sér drykk fyrir sýningu, í hléi og/eða eftir sýningu.
Stjórn Leikhúss-Batterísins,
Björn Elvar Sigmarsson,
Íris Stefanía Skúladóttir,
Arnar Ingvarsson og
Guðjón Þorsteinn Pálmarsson (Denni)